Verkið „Dagdraumar“ er tileinkað öllum þeim draumum sem bærst hafa innra með konum í gegnum tíðina og allra þeirra tækifæra sem ekki urðu að veruleika.

Í verkum sínum hefur Gíslína aðallega verið að vinna með konur og vísa verk hennar til þeirra fjölmörgu kvenna, sem í gegnum aldirnar hafa unnið sín mikilvægu störf í hljóði. Segja má að um sé að ræða óð til allra þeirra nafnlausu kvenna sem sköpuðu söguna, listina og lífið. Þessar konur tengdu lífskeðju kynslóðanna saman, lifðu sem nafnlausar hversdagshetjur og eru gleymdar flestu fólki í dag.

Gíslína Dögg Bjarkadóttir(1975) er fædd og uppalin á Akureyri, en hefur búið í Vestmannaeyjum síðan 2006. Hún útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2004 í textíl- og fatahönnun og hefur einnig lokið kennsluréttindum í listgreinum fyrir grunn- og framhaldsskóla. Gíslína hefur tekið þátt í fjölmörgum samsýningum hérlendis og erlendis og haldið nokkrar einkasýningar hérlendis. Hún var útnefnd bæjarlistamaður Vestmannaeyja árið 2014. Frá árinu 2018 hefur Gíslína einbeitt sér meira að grafíkinni, en þó hefur málverkið átt stóran sess í verkum hennar í gegnum tíðina auk þess sem hún hefur verið með gjörninga og innsetningar.
Gíslína er félagsmaður í SÍM og ÍG.

Titill: Dagdraumar

Aðferð: Photopolymer æting

Pappír: Fabriano, Rosaspina 220 gr. hvítur

Litur: Intaglio etching ink, shop mix soft black

Myndflötur: 13.6 x 13.6 sm

Stærð pappírs: 21 x 25 sm

Upplag: 80 þrykk